Busy doing nothing !!!!!
Það er ótrúlegt hvað ég hef mikið að gera. Ég á að vera að skrifa ritgerðina mína þessa vikuna en ég er á endalausum fundum og útréttingum. Þegar ég hitti fólk er það að spyrja hvort það sé ekki léttara að geta nú loksins einbeitt sér að skrifunum og verð ég hálf kjánalegur og bara jánka þessu þótt sannleikurinn sé annar.
Þetta er auðvitað sjálfskaparvíti og ber vott um alvarlegan athyglisbrest. Það er eins og ég geti ekki afkastað neinu nema undir pressu og það kemur alltaf niður á gæðunum. Svo til að kóróna allt ætla ég á ráðstefnu hjá Glitni á morgun og villbráðarkvöld á eftir og er svo að fara til Skotlands á sunnudag.
Hins vegar var ég að skila af mér lokaorðunum í PIP skýrsluna í dag og vonandi fer hún að komast á koppinn. Þá er þessu endanlega lokið í bili. Það sama á við stússið út af Engjateignum. Nú er búið að ganga frá uppgjörum og greiðslum og koma peningunum þangað sem þeir áttu að fara. Þá hlýt ég að fara að taka á málefni dagsins sem er að skila Data Analysis kaflanum til Pat's fyrir mánaðamót. Annars veiktist konan hans, hún Unni, eitthvað alvarlega þótt hún sé að ná sér svo hann kemur ekki frá USA fyrr en í nóvember. Þetta gæti haft einhver áhrif á hvernig gengur hjá mér.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home