mánudagur, október 23, 2006

Traquair House


Í Skotlandstúrnum í síðustu viku bar margt fyrir augu. Vefnaravöruverksmiðja sem óf efni í Skotapils, Heilsufæðiverksmiðja sem framleiddi grænmetispylsur (frekar fingur en pylsur að mínu mati), Skiltagerð sem framleiddi skilti fyrir þjóðgarða og síðast en ekki síst kastala Stúart ættarinnar sem er elsta byggða hús á Skotlandi eða 899 ár og verður því 900 ára á næsta ári. Traquair House virðist stór kastali en er meiri á hæð og breidd en hann er á dýpt. Það var magnað að ganga þarna um sali og sjá svefnherbergi Maríu Skotadrottningar og herbergi prests hennar með tilheyrandi neyðarútgangi, því það var alltaf verið að reyna að drepa þau. Þarna fyrir utan var hliðið sem lokað var á eftir Bonnie Prince Charlie með þeim orðum að það yrði ekki opnað fyrr en ætt Stúarta kæmist aftur á valdastólinn. Hliðunum hefur aldrei verið lokið upp síðan.

Það sem hins vegar heillaði mig algjörlega var ölgerðin. Þarna hefur verið bruggað öl svo öldum skipti og er ársframleiðslan um 1000 hektólítrar og get ég staðfest að þetta er öndvegis mjöður. Stóðst ég ekki mátið að kaupa eitt svona box eins og myndin sýnir, auk gjafaöskju með tveimur flöskum og drykkjarkrús.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home