Stefán góður í Vín

Var að fá SMS frá Stefáni þar sem hann sagðist hafa spilað illa og endað í 33-68 sæti á Opna Keilumótinu í Vínarborg. Ég leit á heimasíðu mótsins og verð að segja að mér finnst Stefán hafa staðið sig vel í þessu fyrsta opna móti sem hann tekur þátt í. Það voru 256 keilarar sem tóku þátt og Stefán komst í gegnum niðurskurðinn til þess að taka þátt í lokaumferð mótsins. Það voru hins vegar 188 keilarar sem ekki náðu þessum áfanga. Ekki nóg með það heldur voru peningaverðlaun fyrir þetta sæti svo þetta var ekki bara útlagt þó ekki væri hagnaður í þetta skiptið.
Til hamingju Stefán minn


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home