Útlendingastaurar
Það var óveður á Íslandi sl. föstudagsmorgun svo að öllu flugi var frestað um 5 tíma. Icelandair gaf meira að segja út nýja flugáætlun fyrir daginn. Þannig átti vélin sem ég átti að fara með kl. 11:00 frá Glasgow að fara 15:30. Ég tók því lífinu með ró og hélt mig á Raddisson þar til voru 2 tímar í brottför. Þegar ég kom út á völl var ekkert tékk-inn svo ég fór að leita skýringa. Haldiði að Skotarnir hafi ekki haft innritunina á venjulegum tíma og lokað henni 10:30!!! Ég varð alveg brjálaður þegar konan sagði mér að ég gæti ekki komist með. Ég hélt nú annað og byrjaði að lesa henni pistilinn. Þá kom einhver yngri manneskja að og leiddi mig að innritunarborðinu og leysti málið. Þvílíkir álfar að halda að þeir geti ætlast til þess að maður hangi auka 5 tíma á vellinum ef maður kemst hjá því. Svo kórónuðu þeir allt með því að ég fékk ekki uppfærslu og sat afturí, en það breytti ekki miklu því þetta var Loftleiða leiguvél og því lítill munur. Sigrún var í Osló þennan dag og kom einhverjum tveimur tímum á eftir mér heim.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home