Feedback frá Pat
Haldiði að Pat Joynt hafi ekki hringt í mig í gær, þegar ég var á stjórnarfundinum hjá EJS UK! Ég gat ekki talað við hann þá en hringdi aftur þegar fundurinn var búinn, en þá var símsvari í nafni dóttur hans. Ég var nokk hissa því ég vissi að enginn var síminn í Muscoda. Ég náði í hann síðar um daginn og hann var búinn að lesa yfir það sem ég sendi honum. Hann sagði þetta allt hið besta og var ánægður hvernig ég var að byrja að höndla hypothesurnar mínar og sagði mér að halda áfram á sömu braut. Ég spurði frétta af Unni, konu hans, og sagði hann að hún hefði verið útskrifuð af sjúkrahúsinu fyrir tveimur dögum og var hún hjá honum og heyrði ég aðeins í henni hljóðið, þótt ég gæti ekki greint orðaskil. Hann sagði hana sífellt á batavegi og var vongóður, og er ég það líka, þótt ég viti að heilablæðing sé aldrei góður hlutur. Engu að síður ætlaði hann að fresta málstofunni 11. des og sagði þetta ráðast af mér því hún væri að stærstum hluta helguð mér, þ.e. æfingavörninni. Kom okkur saman um að hún yrði haldin í byrjun febrúar og er þá einhver von til þess að ég verði búinn að koma þessu saman.
Sem sagt, góðar fréttir af ritvígvellinum.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home