föstudagur, nóvember 17, 2006

Með börnum

Flaug í gær, fimmtudag, með Gústa til Glasgow til að fara á stjórnarfund í EJS UK. Vélinni var seinkað um hálftíma og svo tók annan hálftíma að fá töskurnar í Glasgow. Við færibandið hitti ég Hafdísi vinkonu Ástu systur og var hún ásamt annarri að fara á vinnufund í Evrópuverkefni. Eftir stjórnarfundinn tók ég leigubíl niður á Radisson, sem er heimili mitt í Glasgow. Um kvöldið fór ég út á völl og sótti Ásdísi sem var þá komin frá Köben. Við fórum á ítalskan stað, lélegan, og fengum okkur snarl og síðan í háttinn. Ég vaknaði hálf sex og hringdi í Stefán, ef ske kynni að hann hefði sofið yfir sig, en hann var þá þegar kominn til Keflavíkur. Ég vaknaði síðan aftur til að fara út á völl og sækja hann. Þar hitti ég Rebekku, fararstjóra hjá ÚÚ frá því á Mallorca, en barnabarn hennar og Anna mín voru mikið að leika saman. Hún er 74 ára og enn að fararstýra, ótrúlega ern. Stefán birtist brátt og við fórum að sækja Ásdísi og síðan tekin lest til Edinborgar, þar sem við nýttum okkur vildarkortið hennar Sigrúnar á Hilton Caledonian og fengum þessi fínu herbergi. Við fórum í HMV og síðan skoðuðum við kastalann hérna á hlaupum. Þá var hlé þar sé ég var í símanum, lagði mig og fór aðeins í ræktina og sund. Í kvöld fór Stefán að hitta keiluvini sína en við Ásdís fórum á indverskan stað að snæða. Góður dagur.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home