miðvikudagur, nóvember 15, 2006

Framundan og núna

Annars er ferð til Glasgow á fimmtudag þar sem ég fer á stjórnarfund hjá EJS UK og síðan kemur Ásdís um kvöldið. Meiningin var að Stefán og Sigrún kæmu á föstudag en þar sem Sigrún var að skjótast til New York áðan, þá kemur Stefán sóló á föstudag. Sigrún flýgur beint frá New York til Edinborgar á laugardag. Ætlunin er að halda til Edinborgar þar sem Stefán ætlar að hitta keiluvini sína og við hin ætlum að túristast. Það verður gaman að hitta Ásdísi og enn betra hefði verið að fá Önnu yfir líka, en það er ekki hægt því það er svo mikið að gera hjá henni í skólanum.

Annars var Anna að blogga að hún hefði verið í þriðja sæti í Karaókí keppni. Til hamingju með árangurinn Anna mín !!!!

Ég er ennþá að glíma við athyglisbrestinn. Ég sendi uppkast að tölfræðikaflanum til Pat's í síðustu viku en hef ekkert heyrt ennþá. Þegar ég prentaði hann út, þá sá ég hvað hann var agalegur og hef verið að krukka í hann síðan. Það sem er verra er að ritgerðin mín er bara 110 síður eins og hún stendur í dag og vantar a.m.k. annað eins upp á. Þess vegna er ég að byrja að þétta aðra kafla svo þetta verði ekki og mikið mál í restina.

2 Comments:

At föstudagur, 17 nóvember, 2006, Anonymous Nafnlaus said...

Já meira helvíti hvað þessar ritgerðir þurfa alltaf að vera langar. Ég mæli með leturstækkun upp í 16 og bold. Það ætti að koma þér eitthvað áleiðis ;-)

 
At laugardagur, 18 nóvember, 2006, Blogger EggertC said...

Það eru reglur um spássíur og leturstærð sem eyðileggja þetta góða ráð, en takk samt. Ég er núna að hanna risastórar skýringarmyndir :-)

 

Skrifa ummæli

<< Home