Fjögur frækin í Edinborg
Sigrún birtist upp úr átta á laugardagsmorgninum og var þá að koma úr flugi frá Newark og hafði lent í Edinborg. Hún lagði sig rétt rúman klukkutíma og var svo komin á fullt í "Power Shopping" með okkur hinum. Ég hafði nú ekki úthald í mikla verslun svo ég lét þær mæðgur mest um búðarrápið laugardag og sunnudag. Við náðum líka að fara í bíó og sjá The Departed, allt í lagi mynd. Á mánudeginum fórum við með leigubíl um morguninn að Rosslyn Chapel, kapellunni sem er sögusviðið í lokaatriðinu í "Da Vinci Code" og stungum þar inn nefi og tikkuðum í boxið. Þarna á að vera mikið af alls konar frímúraratáknum og sá ég ekkert. Samt nauðsynlegt að hafa komið þarna og séð þetta. Á örugglega eftir að skoða þetta betur seinna. Síðan var haldið á lestarstöðina og lestin tekin til Queen Street í Glasgow


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home