laugardagur, nóvember 25, 2006

Glasgow vikan kláruð

Þegar við vorum komin á lestarstöðina í Glasgow á mánudeginum, þá tók ég leigubíl með allar töskurnar og Stefán. Sigrún og Ásdís tóku síðustu verslunarsyrpuna, enda ekki rétt að sleppa góðu búðarrápi ef það býðst. Það var rok og rigning og eina huggunin að það var snjór og kuldi heima. Um kvöldið fórum við á ítalskan veitingastað og Casino Royal, Bond myndina.

Á þriðjudeginum fóru Sigrún og Stefán um morguninn heim til Íslands og Sigrún komin í vinnuna um tvöleytið og búin að vera að vinna síðan :-) Ég fór að hitta Stephen og Darren hjá Metis eftir hádegið og þegar ég kom til baka byrjuðum við Ásdís að fara yfir ritgerðina hennar sem hún á að skila í loks námskeiðsins sem hún tekur á þessu misseri. Um kvöldið fórum við á Mexíkóskan stað, sem var ekki alveg á þeim stað sem hótelið sagði, en við fundum engu að síður. Staðurinn var svo sem ekkert spes, en maturinn mjög góður og gaman að borða eitthvað öðruvísi.

Á miðvikudeginum fór ég að hitta fyrirtæki sem ég ég kynntist á fjárfestaráðstefnunni í Edinborg, með það að markmiði að fjárfesta í þeim. Þetta lítur spennandi út og fékk ég helling af gögnum sem ég er að vinna úr. Ég er líka búinn að fá aðila í þetta með mér að heiman og ætlum við að fara yfir þetta í næstu viku. Við Ásdís héldum áfram með ritgerðina fram til klukkan sex en þá hafði Stephen boðið mér með sér í kokteil hjá lögfræðiskrifstofu sem hann á viðskipti við. Þar hitti ég fólk, þar á meðal, Wendy frá 9/20 ráðningarþjónustunni, sem ég hafði hitt stuttu áður á fyrirlestrinum mínum á námskeiðinu í Dakota hótelinu. Hún er að vinna í ráðningarmálum EJS og fórum við yfir stöðuna.

2 Comments:

At laugardagur, 25 nóvember, 2006, Blogger Anna C said...

gott að þið skemmtuð ykkur vel :)
Gaman að fjölskyldan sé að ferðast svona saman.

Alltaf nóg að gera hjá ykkur

hér er ég bara á fullu í ritgerðarvinnu (tvær ritgerðir í næstu viku, ein 15 bls og önnur 8 bls)+ grein og stærðfræðiheimavinna meðan lumi er á fullu að vinna.

Kveðja frá Vín,
Anna og Lumi

 
At laugardagur, 25 nóvember, 2006, Blogger EggertC said...

Já, þetta var rosa gaman að geta púslað þessu saman þannig að við gætum gert þetta. Auðvitað vantaði mikið að hafa þig ekki með, en huggunin er sú að við gátum keypt jólagjafir handa þér þannig að þú sæir ekki :-)

Það er greinilega nóg að gera hjá þér þangað til þú kemst heim um jólin.

Hlökkum til að sjá þig um jólin. Þú veist að við verðum fjögur samferða heim þann 17. des.

Pabbi

 

Skrifa ummæli

<< Home