Skotist til Akureyrar

Ég fór á fimmtudaginn til Akureyrar. Erindið var að afhenda tvo námssstyrki, hvorn að upphæð kr. 500.000.-, til nemenda í raungreinum. Styrkirnir eru veittir í nafni Hugvits, sem er dótturfyrirtæki GoPro, þar sem ég er stjórnarformaður. Ég er formaður úthlutundanefndar sem sér um að velja þá nemendur sem fá styrkinn. Ég var svo ljónheppinn að Hugvit er með útibú á Akureyri og Jón Víðir, starfsmaður þar, var mér innan handar, þ.e. sótti mig út á völl og var búinn að undirbúa allt svo ég var eins og rokkstjarna. Ég tók 11:15 vélina til Akureyrar og var lentur kl. 12:05. Kominn upp í Háskólann á Akureyri 10 mín. síðar. Kominn í ræðustól 5 mín eftir það og búinn að halda ræðu og afhenda styrkina á innan við klukkutíma frá komu.
Síðan þegar ég var búinn að skoða aðeins húsakynnin fór ég með Jóni Víði og skoðaði Miele búðina sem Eyjólfur var að opna á Akureyri og svo fórum við að líta á nýtt skrifstofuhúsnæði sem stendur til boða fyrir starfsemi Hugvits á Akureyri. Þá var það að fara út á flugvöll og taka 14:25 vélina til Reykjavíkur aftur. Þetta var aldeilis skottúr.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home