Góður dagur í Glasgow
Það verður ekki annað sagt en að ég hafi notað tímann vel í dag. Ég byrjaði á að funda með Stephen Robertson hjá Metis og við fórum yfir hin ýmsu mál, en aðallega þó aðkomu mína að ERDF verkefninu, en ég mun stýra a.m.k. einni vinnustofu og taka þátt í annarri. Þá lá leið mín upp á Exchange Square þar sem ég kom við á 29 klúbbnum, en meðlimir þar fá 29% afslátt á Radisson og því áhugavert að reyna að lækka hótelreikninginn hérna þegar maður þarf að borga allt að 150 pund fyrir nóttina. Ég fékk umsóknareyðublað og ætla að skoða nánar. Næsti fundur var með David Grahame hjá LINC, fjárfestasamtökunum, en ég er að reyna að finna út hvernig félagsskapur fjárfestaengla starfar, en engin slík eru starfandi á Íslandi. Hann tók mér afar vel og útskýrði þetta allt fyrir mér. Afar fróðlegt. Að þessum fundi loknu fór ég á pósthúsið þar sem ég póstaði DVD til Ásdísar og Önnu, en ég er að treysta því að þær lendi ekki í að þetta verði tollað þar sem þetta er sent innan EU. Í hádeginu hitti ég Mark Wheeldon og félaga hjá Formedix hérna á Radisson. Áður náði ég að skella í mig nýju ferðafæðunni minni, en það eru haframjölskökur eða stykki, sem fást í sjoppunum hérna. Ekkert hveiti og því í lagi. Minnir mig á hjónabandssæluna sem mamma bakaði, nema engin sulta. Eftir fundinn með Mark var haldið upp á skrifstofu hjá Metis á Lynedoch Street þar sem ég sótti bækurnar sem ég pantaði á Amazon og ætla að nota í ritgerðina mína. Við Darran gengum síðan saman út í sólina og töltum á síðasta viðburð dagsins en þar var kynning á ERDF verkefninu, sem er stytt útgáfa af PIP verkefninu sem ég tók svo mikinn þátt í. Þarna þekkti ég heldur betur marga því þarna voru Iain, Gavin og Fiona frá SIAC, Wendy frá 90/20, Donald frá Gayle, Caroline Sincock og svo síðan Metis gengið. Stephen bað mig að segja nokkur orð í restina um PIP, sem ég og gerði. Að þessu loknu tölti ég á Radisson aftur og endaði á að fá mér lambakjöt með brockoli og frönskum. Góður dagur !!!


1 Comments:
vó greinilega nóg að gera.
ú lambakjöt og franskar. Var ekki æðislegt að fá svona góðan mat eftir að hafa verið á heilsufæði í svo langan tíma?
hlakka til að fá sendinguna :)
knus fra vin,
Anna
Skrifa ummæli
<< Home