laugardagur, mars 24, 2007

Frelsun í nánd

Ég hitti Guggu frænku í gær og fór yfir það sem ég er að berjast við í tölfræðinni minni. Eins og við mátti búast tók hún mér afar vel. Þegar ég var búinn að útskýra hvað það væri, sem ég þyrfti að skila og væri að berjast við, sagði hún þetta lítið mál. Hún ætlar að líta yfir þetta og við munum hittast á næstu vikum til að klára þetta og síðan ætlar hún að lesa þetta yfir hjá mér til þess að staðfesta að ég hafi skilið þetta rétt. Eins og gefur að skilja, þá var þetta þvílík himnasending því ég er búinn að vera berjast við tölfræðina í tvo mánuði og sérstaklega eftir æfingavörnina þar sem ég var gataður á henni. Mér líður því eins og nú sé allt að hafast á endasprettinum og nú sé það bara að krossa téin og setja punktinn yfir i-in.

Takk Gugga !!!!!!!

1 Comments:

At laugardagur, 24 mars, 2007, Blogger Anna C said...

Munar um að hafa góða að til að hjálpa sér :)

gangi þe´r vel í ritgerðarskilinni

knús frá Vín,
Anna C

 

Skrifa ummæli

<< Home