föstudagur, mars 23, 2007

Laugardagur í Cambridge


Bloggsíðan mín vill ekki vista það sem ég skrifa svo það er ekki alltaf samfella í skrifunum hjá mér. Það sem vantaði frá síðustu helgi var að að morguninn eftir grímuballið góða í London vaknaði Sigrún kortér í átta og hljóp 26 kílómetra. Ég svaf !!! Síðan tókum við lest eftir hádegið til Cambridge þar sem árshátíð GoPro var um kvöldið. Lestarferðin var 45 mín og án viðkomu. Við vorum á Crown Plaza hótelinu sem er nokkuð þokkalegt. Árshátíðin tókst hið besta og ekki annað að sjá en allir skemmtu sér hið besta. Daginn eftir gengum við um bæinn en það var rok og kalt svo maður var best geymdur inni. Við Sigrún tylltum okkur á kaffihús við ána og horfum á fólkið hrekjast í rokinu. Síðan var haldið til London þar sem Sigrún fundaði með event fyrirtæki og ég tölti með. Þá var það flugvöllurinn og ég svo heppinn að fá uppfærslu. Virkilega góð ferð þessa helgi og ekki annað hægt að segja en tíminn hafi verið vel nýttur.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home