föstudagur, mars 02, 2007

Í heimsókn hjá hómópata

Í dag fór ég til hómópata til þess að fá ráðgjöf um mataróþol og heilsufar. Ég var tengdur við tæki á úlnliðum, fótum og enni og þetta ágæta tæki las mig eins og opna bók. Niðurstaðan kom að mörgu leyti á óvart, en annars ekki. Allt sem mér þykir gott og hef borðað og drukkið mikið af, er bannað. Listinn var aldeilis ógnvekjandi. Bannið nær yfir ger, sykur, hveiti, skelfisk, mjólkurmat, sérstaklega allir ostar, sitrusávextir, tómatar, agúrkur, bjór, rauðvín, súkkulaði, gervisæta og gosdrykkir. Framvegis verður dæmigerður morgunverður sykurlaust kornflex með sojamjólk með smávegis af fræum eða einstaka súrdeigsbrauð með banana eða epli. Hádegismaturinn verður blandað salat með fræum, súrdeigsbrauð með sardínum og salat úr afgöngum af speltipasta og heilgrjónum. Kvöldmaturinn verður fiskur sem er ekki saltaður eða kjöt og einu sinni í viku er steikt grænmeti með eggjahræru. Jibbí !!!

Ég fékk að auki hómópataremedíur sem ég tek sumar á morgnana og aðrar á kvöldin og eiga þær að hjálpa mér að losna við bjúg, gigt og laga snefilefnastöðuna.

Ég fór í Hagkaup og keypti þessi lifandis býsn af heilsuvörum og grænmeti og var reikningurinn 14 þúsund. Ég ætla ekki að reyna að reikna út hvað það eru margi stórir af krana.

Til þess að halda þetta út er gott að trúa á jólasveininn, tannálfinn, páskahérann og að Elvis lifi.

2 Comments:

At laugardagur, 03 mars, 2007, Blogger Anna C said...

Been there done that!

vonandi virkar þetta :)

Knús frá Vín,
Anna

 
At laugardagur, 03 mars, 2007, Blogger EggertC said...

Já, það er eins gott miðað við matseðilinn :-)

 

Skrifa ummæli

<< Home