Bloggað í Bergen
Þá gat ég tikkað í eitt boxið í viðbót við komuna til Bergen því hingað hef ég ekki komið áður. Þar sem ég var að kenna á miðvikudaginn, tók ég 14:10 vélina til Köben og 21:00 vélina til Bergen og sá borgina í myrkrinu, en engu að síður virtist borgarstæðið mjög fallegt. Ég tók leigubíl á Grand Hotel Terminus, þar sem ég hitti Guðmund frá SI og við ræddum stutt verkefni morgundagsins.
Fimmtudagurinn fór allur í Grieg höllina, þar sem Eurovision fór fram sælla minninga, og var þetta fundur Norrænu upplýsingatæknifyrirtækjasamtakanna sem hlutur af forverkefni á vegum Norrænu Nýsköpunarmiðstöðvarinnar til þess að kanna áhuga á að hleypa af stokkunum stærra verkefni til eflingar samvinnu og samskiptum fyrirtækja og skóla á Norðurlöndum. Ég var nú ekki alveg seldur á þetta en þegar ég sá hvað hin samtökin voru spennt fannst mér í lagi að fljóta með. Þegar fundurinn var búinn um fjögur var verið að opna tölvusýningu á kjallara bílageymslunnar í höllinni og síðan var Windows Vista lancerað seinna um daginn en ég nennti ekki á það. Loks var hátíðarkvöldverður þar sem var ágætis matur og leiðinleg skemmtiatriði svo ég fór snemma heim á hótel því ég átti flug snemma um morguninn til að geta náð hádegisvélinni í Köben.
Í Köben fékk ég mig uppfærðan og þegar ég var að ganga út í vél, hitti ég Eyjólf (Miele mann) og vildi svo frábærlega til að við vorum í sæti hlið við hlið. Þvílík tilviljun! Það var því nóg að spjalla á heimleiðinni og tíminn leið hratt þótt flugið væri í lengra lagi vegna mótvinds.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home