Jólasteikin og gleymd knöll

Ég var að fá frá Ásdísi þessa mynd sem var tekin á Aðfangadagskvöld. Eins og sést þá var jólasteikin og kokkurinn í fínu formi þetta kvöld. Þetta er því að verða efni í ansi langa myndaröð í ævisögunni þegar ég sýni allar jólasteikurnar sem ég hef matreitt :-)
Síðan var að koma í ljós að ég gleymdi í jólaboði fjölskyldunnar minnar að setja fram jólaknöllin sem ég keypti í Glasgow og kom heim með miklu harðfylgi. Nú er spurning hvort svona knöll geymast allt árið, því ég keypti 30 stk. !!!


3 Comments:
Sprengja knöllin bara á þrettándanum
Óvitlaust en það verður ekkert tilstand hjá okkur í dag.
flott myndin
Skrifa ummæli
<< Home