Kóngsbakki kvaddur og haldið til Köben
Ekki varð Stefáni að ósk sinni að ná í gegnum Desperado umferðina, en Hafþór félagi hans hafði heppnina með sér og komst áfram og gott betur því hann komst í 32 manna úrslit og endaði með að tapa fyrir spilaranum sem síðan vann mótið. Ekki amalegur árangur það.
Ég hélt af stað á undan Stefán í gær sunnudag til þess að hitta Ásdísi og Önnu á Kastrup. Tímasetningar hefðu varla getað verið betri því við vorum þarna þrjú á sama hálftímanum að koma frá jafnmörgum stöðum. Við héldum niður í bæ og löbbuðum niður Strikið og náðu smá jólaverslunarstemmingu áður en búðirnar lokuðu. Síðan fórum við í jóla Tívólíið og var heldur betur gaman að sjá ljósin og skreytingarnar. Þótt það væri heldur blautt í veðri, þá komumst við feðginin í jólaskap. Við enduðum á því að setjast niður og fá okkur heitt súkkulaði og spjalla saman. Frábær stund.
Loks héldum við aftur út á Kastrup þar sem Stefán var rétt að renna í hlað. Við tékkuðum okkur inn og í öryggishliðinu var Ásdís gómuð með jólagjafir í snyrtivöruformi og þurfti að bíta í það súra epli að horfa á eftir nokkrum gjöfum í tunnuna. Mín var nú ekki ánægð !!!. Við settumst á Hereford og fengum okkur að borða. Síðan var haldið í flug þar sem ég fékk uppfærslu og átti gott flug heim. Það var seinkun vegna mótvinds og allt tók sinn tíma í flugstöðinni svo við vorum ekki komin heim fyrr en 1:30 og seinna í rúmið. Samt var ósköp gott að vera búinn að fá alla heim um jólin.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home