föstudagur, desember 15, 2006

Þungur róður


Minn maður er u.þ.b. að ljúka öðrum keppnisdegi sínum hér á Kóngsbakka. Honum hefur gengið afleitlega í dag og sárt að horfa á. Það er þó huggun harmi gegn að það verður allt á uppleið á morgun. Mér finnst svolítið skondið að horfa á skjána fyrir ofan kepppnishópinn hans þar sem þeir spila hlið við hlið, Vim Claessens og Stefán Claessen. Skyldu þeir vera frændur ???
Síðan spilar hann svokallaða Desperado umferð á morgun, í restina, en þar er spilaður einn leikur og fjórir efstu komast áfram. Skemmtilegt fyrirkomulag sem gefur smá sjéns í restina. Félaga hans, honum Hafsteini hefur gengið litlu betur en þó skárra eftir því sem liðið hefur á daginn þar sem hann er að sækja í sig veðrið í síðustu leikjunum. Það er vel staðið að upplýsingagjöf og get ég fylgst með stöðunni á hverri braut beint á netinu þó ég sitji á staðnum. Hreint magnað. Ef þið viljið gera slíkt hið sama, farið þá á http://www.kungsbackabowling.se/ og veljið Online Resultat og þá sjáið þið skjána fyrir hverja braut ásamt nöfnum þeirra sem eru að spila.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home