Lúsíuhátíð úr böndunum
Það vakti athygli okkar feðga í gær að það voru stúlknahópar í hvítum kyrtlum með kerti að skemmta matargestum á hótelinu og víðar. Eitthvað virðist þetta hafa orðið meira í kvöld því núna kl. 21:00 byrjuðu allar brunabjöllur á hótelinu að pípa, þ.á.m. inni í herberginu okkar Stefáns. Ég kunni ekki við annað en að labba niður og gá hverju sætti og fann hitalykt á ganginum. Þegar ég kom niður var hótelstjórinn í öngum sínum að reyna að slökkva á kerfinu án árangurs. Það hringdi því og hringdi öllum bjöllum þar til slökkviliðið kom á staðinn með stigabíl og reykkafara auk sjúkrabíls. Slökkviliðsmönnunum gekk betur að eiga við kerfið og þegar þeir náðu að slá það af, afréf ég að halda aftur til herbergis. Þar sem ég gekk í gegnum anddyrið var þar hópur skömmustulegra stúlkna í hvítum kyrtlum með kerti og flissuðu rjóðar í vöngum. Segið svo að ekkert gerist á Kóngsbakka !!!


1 Comments:
hehe svaka drama á lúsíuhátíð...
Skrifa ummæli
<< Home