Afsakið, meðan ég æli .....
Var það ekki Megas sem átti þessi fleygu orð? Mér varð allavega hugsað til þeirra þegar ég byrjaði að kasta upp lifrum og lungum rétt fyrir sex í morgun. Mér hafði svo sem ekki liðið vel í gær en kenndi bara um ferðaþreytu. Síðan svaf ég ekki vel í nótt og hafði einhvern veginn á tilfinningunni að þetta myndi ekki enda vel, sem kom svo á daginn. Ég er óttalega eftir mig en næ ekki að sofa vegna beinverkja og flökurleika og kem auðvitað engu niður. Það sem skelfir mig meira þessa stundina er tilhugsunin að vera að fara í flug í fyrramálið með Stefáni. Vonum það besta !!!


2 Comments:
æi greyid elsku pabbi minn. Láttu nú þer batna. Síðast þegar mér var flökurt og átti að fara í flug var skellt stíl í rassinn á mér, ekki beint þægilegt en það reddaði fluginu og mallanum. Hvað ætli ástæðan sé fyrir gubbupestinni?
Takk Anna mín. Þetta er sem betur fer að lagast og vonandi verður í lagi að ferðast á morgun með Stefáni. Hlakka til að hitta þig og Ásdísi í Köben.
Skrifa ummæli
<< Home