Jólafjör í Glasgow

Nú var komið að árlegu jólateiti hjá EJS UK hér í Glasgow. Við héldum stuttan stjórnarfund í gær og fórum í hádeginu út að borða til þess að halda upp á sextugsafmæli eins starfsmanns (á mánudag) og einnar stúlkunnar sem vinnur hjá fyrirtækinu. Við fórum á indverskan stað og fengum okkur karrý, sem er hálfgerður þjóðarréttur hér. Starfsmanninum var afhent fallegt úr og ermahnappar að gjöf. Ég brá aðeins á leik og afhenti honum Tópas vodkaskot sem ég sagði að hægði vel á öldruninni. Ég gaf síðan stúlkunni venjulegan Tópas með þeim orðum að hún þyrfti ekki á aldursverkuninni að halda :-)
Um kvöldið var farið í Jonglers klúbbinn sem er "Comedy Club" og þar fengum við paté í forrétt, einhvern grænmetisrétt og ostaköku í eftirrétt. Síðan var uppistand þar sem þrír grínistar fóru á kostum. Ekki náði ég samt öllu þar sem mig vantaði svolítið á að skilja menningarmuninn. Það er svona að vera útlendingur. Samt var þetta mun skárra heldur en árin tvö á undan þar sem bara var borðað og drukkið en engin skemmtun. Ég kláraði að hlusta á grínistana og hélt síðan heim á leið um hálf tólf. Reyndar var svo um fleiri því fólk drakk ansi stíft þarna og margir teknir að þreytast. Það var ekki langur gangur því þetta var við hliðina á bíóinu sem við fjölskyldan fórum á í síðustu viku á Bond myndina. Þess vegna var auðvelta að rata heim á Radisson.

2 Comments:
Það er gott að þú ert farin að rata ...og líka eðlileg þróun þar sem þú ert hálf fluttur til Glasgow.
Já, mér finnst ég vera fluttur hingað, eigandi eftir að vera viku í viðbót. Þetta fer nú að verða ágætt.
Skrifa ummæli
<< Home