fimmtudagur, nóvember 30, 2006

Búinn að finna Dipsy


Mér rann til rifja fáfræði mín um Teletubbies þegar ég fékk A.Dip.C. gráðuna, eða Dipsý gráðuna eins og gárungarnir kalla hana. Það var því ekki annað til ráða en fara á netið og gúgla og viti menn !!! Ég er búinn að finna Teletubbies síðu sem sýndi mér fyrirbærið og gott betur því það voru alls konar hljóð á síðunni líka sem fengu mig til að þakka í hljóði fyrir að hafa ekki átt börn á þeim aldri sem elskuðu Teletubbies.

8 Comments:

At fimmtudagur, 30 nóvember, 2006, Blogger Dis said...

Þetta er hræðilegt barnaefni. Að vísu elska öll börn undir 2 ára aldri þetta því það eru svo miklar endurtekningar í þáttunum...en, ég vorkenni foreldrunum að þurfa að hlusta á þetta.

 
At fimmtudagur, 30 nóvember, 2006, Blogger EggertC said...

Já, það er ekki að ástæðulausu að ég er þakklátur fyrir að hafa misst af þessu :-)

 
At laugardagur, 02 desember, 2006, Blogger Anna C said...

hehe.. ég er mjög fegin ad hafa misst af þessu barnaefni :P
Var ekki fraggle rock mun skárra?

Lazytown er málið :P

 
At laugardagur, 02 desember, 2006, Blogger EggertC said...

Já, má ég þá frekar biðja um Búrabyggð, en á ensku, því íslenska útgáfan var ekki eins áheyrileg. Það var alveg ótrúlegt hvað þú gast horft á þetta Anna mín.

 
At sunnudagur, 03 desember, 2006, Blogger Anna C said...

já einmitt, hver vissi að búrabyggð yrði byrjunin á sjónvarpsglápi mínu, það er ekki eins og ég hafi breyst mikið, ég held ég horfi alveg jafn mikið á gilmore girls og aðra þætti :P

 
At mánudagur, 04 desember, 2006, Anonymous Nafnlaus said...

þetta venst ;)

 
At mánudagur, 04 desember, 2006, Blogger EggertC said...

Þá áttu líklega við þættina. Ég held að ég muni alltaf eiga erfitt með að venjast því að vera kallaður "Dipsý" :-)

 
At miðvikudagur, 06 desember, 2006, Anonymous Nafnlaus said...

Allt er vænt sem vel er grænt!!

En hann Jon minn var dolfallinn addaandi Stubbana eins og Teletubbies heita a islenskunni. Og eg sem modir ungra barna finnst thetta alls ekki svo slæmt barnaefni. Their eru svo godir vid hvorn annan, knusa og leika og dansa. Sjalfri fannst mer their mun skarri ad hlusta a en Songvaborg med Siggu Beinteins. Svo megum vid ekki gleyma ad Stubbarni eru framleiddir fyrir aldurinn 0-2 ara, svo thad skiptir ekki mali hvort okkur fullordna folkinu finnst thetta skemmtiefni edur ei. Stubbarnid eru lika eitthvad annad en thad "ofbeldisfulla" barnaefni sem Jon er ad horfa a i dag svo eg nefni nu bara til dæmis Tomma og Jenna.

 

Skrifa ummæli

<< Home