Fallegt bréf

Ég sagði við Stephen hjá Metis þegar við hittumst að þó það væri enn nokkur tími til jóla þá ætlaði ég að hjálpa honum að hressa við fólkið í kringum hann svo hann hefði tíma til að vinna að sameiginlegum verkefnum okkar. Í þessu skyni færði ég honum pakka handa konunni, börnunum og Darren, en þetta voru snyrtivörur, sælgæti og vodkaskot. Hann sagði þetta óþarfi, en þakkaði fyrir. Hann færði mér svo daginn eftir þakkarkort frá konunni sinni og bréf frá börnunum sem hljóðaði þannig.
"Dear Eggert,
thank you for the bag of sweets. We love sweets.
Love, Matthew and Emily"
Ég er aldeilis búinn að eignast vini þarna :-)


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home