Glasgow vikan kláruð (2)
Það virðist vera einhver takmörkun á því hvað bloggin geta verið löng hjá mér svo það vantaði á textann hvað tók við að loknu kokteilboðinu hjá lögfræðistofunni.
Þegar ég kom til baka var Daði í Tolvumiðlun mættur, því hann ætlaði á ráðstefnudaginn hjá SIAC. Við fórum því þrjú á japanskan stað og fengum okkur Sushi. Ásdís hafði ekki borðað Sushi áður, svo þetta var upplifun fyrir hana.
Á fimmtudeginum var svo "dissemination event" hjá Scottish Intellectual Asset Centre. Þétt dagskrá frá 10:30-16:00. Margt af þessu hafði ég heyrt áður þar sem ég var í study heimsókninni, sem var umfjöllunarefnið. Samt var áhugavert að heyra um internetportal fyrir þekkingarverðmæti og nýtt tól sem heitir "Pave" og er notað til að meta virði þekkingarverðmæta. Ég var mjög gagnrýninn ásamt öðrum á það að virða þekkingarverðmæti upp á tvo aukastafi, og verður það ekki í þeirri útgáfu tólsins, sem verður sett á netið á næstunni. Ásdís kom í hádeginu og borðaði með mér og náði ég að kynna hana fyrir Stephen, Darren, Iain, Mariu Weir og Giuvanni, þannig að hún fékk aðeins að hitta fólkið sem ég er mikið að vinna með í þekkingarmálunum mínum. Ásdís fór eftir matinn út á völl og hélt til síns heima í Árósum. Ég fór í ræktina og pottinn eftir ráðstefnuna og síðan var okkur erlendu þátttakendunum, utan eins, sem þurfti að fara fyrr, boðið í dinner um kvöldið. Þarna voru mætt Susanne frá Lichtenstein, Marens frá Hollandi, Daði og svo fólkið frá SIAC. Það voru frjóar umræður um stöðu þekkingarverðmætaumræðunnar og maturinn var fínn líka. Við Daði tókum síðan bjór á barnum á Radisson áður en haldið var í háttinn og svo heim á föstudagsmorgninum.


2 Comments:
Takk fyrir æðislega ferð
Takk sömuleiðis Ásdís mín. Það var frábært að þú skyldir komast með.
Skrifa ummæli
<< Home