Lengi von á dóti og drasli
Ég fékk tölvupóst í vikunni þar sem eigandi Engjateigsins fór fram á að við Gústi losuðum bílskúrinn og eignin væri endanlega afhent. Ég tók þessu létt þar sem ég átti ekki von á öðru en að það væri létt mál og löðurmannlegt að sækja minningakassana tvo sem ég setti ofan í þegar við tæmdum minjasafnið okkar. Þegar ég kom á staðinn á fimmtudaginn kom í ljós að kassarnir voru fleiri og ýmislegt annað dót. Þegar ég var búinn að fylla jeppann af dóti sagði ég við Gústa að rest mætti á Sorpuna mín vegna. Ég fékk svo Stefán til þess að koma með mér í Hamraborgina til þess að hjálpa mér að koma þessu fyrir. Ég gat ekki annað en brosað þegar Stefán opnaði hurðina á jeppanum og sá allt dótið. Minn maður andvarpaði og sagði "Já, það er bara". En nú á allt dótið að vera komið á sinn stað en ég á eftir að raða betur svo þetta fari vel. Sem sagt, búið að flytja af Engjateignum. Finally !!!


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home