Súkkulaði í verðlaun

Var að koma af rúmlega tveggja tíma fræðslufundi hjá LES, LICENSING EXECUTIVES SOCIETY, og var dagskráin helguð “Scottish Universities - a sparkling future?”. Eina ástæðan fyrir því að ég fór þarna var að Caroline Sincock er þarna í forsæti, en Caroline er sú fyrsta sem ég kynntist frá Scottish Intellectual Asset Centre. Þetta var upphafið af farsælu samstarfi mínu við miðstöðina. Dagskráin á þessum fræðslufundi var bara ágæt en þetta var lítið herbergi, margir inni og því heitt og loftlaust. Fannst mér sem að ég hefði verið í gufubaði. Sárabótin var að Caroline veitti tvenn verðlaun í restina. Sá sem skráði sig fyrstur á fundinn fékk súkkulaði og síðan fékk ég súkkulaði fyrir að vera sá sem var lengst að kominn. Segið svo að það sé ekki gott að vera Íslendingur !!! Það sem var fyndið við þetta að í takt við hitann á fundinum þá kallaðist súkkulaðið "Melts" :-)


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home