föstudagur, desember 08, 2006

Ótrúlegir 48 tímar

Ég byrjaði á því að fara í lest til Dunblane og á hótel þar. Síðan um kvöldið var hátíðarkvöldverður í Stirling kastala. Daginn eftir var byrjað á að fara í Famous Grouse víský-verksmiðjuna og tókum við túr um verksmiðjuna og lærðum að smakka viský snemma dags, auk kynninga á fyrirtækjum. Það var farið í Roslin Tech Centre þar sem kindin Dolly var búin til. Síðan í Rosslyn Kapelluna sem Da Vinci bókin endaði og loks á Caledonian Hilton hótelið sem fjölskyldan gisti ekki fyrir svo löngu. Þar beið skotapils og tilheyrandi sem mér tókst að koma mér í. Þá var farið í pilsinu í móttöku í Ráöhúsinu og síðan í Hummer Limma með diskó og kampavíni í flugsafn. Það var ég í flugskýli með Concorde flugvél og borðaði undir vélinni. Síðan var farið í Alba Tech Centre, Caledonian Háskólann og loks nýjar höfuðstöðvar BBC í Glasgow. Það var farið í rúmið kl. eitt eftir miðnættið og vaknað klukkan 6. Þetta var þeysireið en margt skoðað og mörgum heilsað. Frábært ævintýri.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home