Kominn á Kóngsbakka
Það fór betur en á horfðist með ferðalagið hingað í gær. Ég hafði skánað mikið í maganum og þó lystin væri ekki mikil, þá var maginn til friðs. Ég var svo heppinn að fá uppfærslu, því vélin var kjaftfull, og á móti kom að Stefán hafði autt sætið við hliðina á sér. Við vorum líka lukkulegir þegar kom á Kastrup, því vélin var komin að hliðinu 10 mín í 12 og þar sem lestin fór 12:36 var ég ekki vonmikill á að það næðist. Engu að síður vorum við komnir með töskurnar, búnir að kaupa miða og mættir á brautarpallinn 12:32, sem var aldeilis gott því þá þurftum við ekki að hanga auka klukkutíma á vellinum. Lestarferðin var 3:20, viðburðarlítil og við reyndum bara að halla okkur og hlusta á tónlist.
Hótelið okkar er rétt hinum megin við götuna frá járnbrautarstöðinni. Fábreytt en allt sem þarf eins og mjúk rúm, góð sæng og koddi, hratt internet og margar sjónvarpstöðvar. Bara í góðu lagi. Við tókum leigubíl út í keiluhöllina og þar hitti Stefán fyrir Íslendingana sem eru að keppa og var spjallað og spekúlerað. Við gengum síðan til baka og er Kóngsbakki ekki stórt pláss. Við fundum Kringlu með veitingastöðum og búðum rétt hjá hótelinu svo við erum vel settir.
Í dag sváfum við út og gengum í keilusalinn, nema nú var rigning og rok svo við vorum nokkuð blautir þegar við komum hingað. Mér til mikillar undrunar er opið og hraðvirkt net hérna svo ég get bloggað á meðan Stefán spilar. Hann er að klára fyrsta leikinn sinn og er ekki að spila vel svo það getur vel verið að ég bjóðist til að fara ef það skyldi vera, að ég væri einhver ólukkugrís :-)


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home