Á Ölstofu Kormáks og Skjaldar
Það er eitthvað svo óraunverulegt að keyra niður í bæ og skjótast inn á ölstofu Kormáks og Skjaldar. Þarna inni er reykurinn í loftinu og dálítið merkilegt að sjá hverjir sækja staðinn. Alveg merkilega venjulegt fólk, og svo ég og Eyþór. Við félagarnir í doktorsnáminu eigum þetta athvarf þegar Eyþór er á landinu. Við hittumst þarna, fáum okkur einn stóran og rekjum raunir okkar í náminu. Síðan stöppum við í hvorn annan stálinu og kveðjumst síðan sannfærðir um að okkur séu allir vegir færir.
Í dag var dagskránni fylgt að venju. Ég er í kröm vegna þess að ég á eftir að skrifa 80 síður og Eyþór á eftir að vinna tölfræðina sína, niðurstöður og yfirfara ritrýnina. Við vorum sammála um að þetta væri eins og maraþonið. Við værum í 32 og ættum 10 eftir. Orðnir skítþreyttir og leiðir, en værum að sjá fyrir endann á þessu. Nú væri bara að duga eða drepast. Við ætlum að duga.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home