Baggalútur og jólin
Það var notalegt að setjast niður, daginn fyrir Þorlák, og klára að pakka inn síðustu gjöfunum með krökkunum og hlusta um leið á nýju jólaplötuna með Baggalút. Þótti okkur bæði lög og textar eiga vel við við stemminguna. Hver hefur ekki lent í að afsaka þennan reyk inni, því viðkomandi var að líta eftir steikinni, og þegar spurt er; hvar er rauðkálið, grænu baunirnar, viltu kartöflur, sykurbrúnaðar. Þetta er yndislegt að vera svona saman :-)
Þar sem Þorláksmessa lenti á laugardegi var þetta einhvern svo rólegt allt saman. Ég fór í ræktina og var ósköp lélegur og fór síðan niður í bæ þar sem Sigrún var að hitta vinkonur sínar. Við gengum síðan um bæinn og skoðuðum. Seinna um daginn fórum við í Kringluna að skoða svo við náðum að taka inn jólastemminguna.
Aðfangadagur var svo ósköp hátíðlegur. Við Sigrún fórum upp í kirkjugarð og síðan með pakka og sækja alls kyns fatnað sem Sigrún hafði pantað í Kína og hafði komið með einum starfsmanninum kvöldið áður. Þetta voru hinn glæsilegasti samkvæmisklæðnaður og verður mín aldeilis flott. Ég eldaði að venju og sannaði enn á ný hin fornkveðnu sannindi að gæði matarins eru í réttu samhengi við það hvað ég sóða mikið út í eldhúsinu. Tartaletturnar voru góðar og steikin alveg rétt, þ.e. spruðið gott og nóg af því. Sem sagt, hefði barla getað tekist betur. Síðan vann ég möndluna annað árið í röð, sem er dálítið merkilegt því ég fæ mér alltaf síðast, þar sem ég set möndluna í tartaletturnar. Vinningurinn þetta árið er leir-actionary. Við náðum ekki að prófa en það verður fróðlegt að sjá hvernig þetta fer fram. Þetta hafa því verið "Gleðileg Jól"


2 Comments:
Takk fyrir mig, þetta voru frábært jól
Takk sömuleiðis. Það frábært að fá þig heim um jólin Ásdís mín.
Skrifa ummæli
<< Home