mánudagur, janúar 01, 2007

Nú árið er liðið, enn hraðar en áður


Þar sem ég er búinn að blogga í rúmt ár, er kominn hringur með jól og áramótahugleiðingar. Mér finnst reyndar ekki ár síðan ég gerði upp nýliðið ár, en það er einungis til marks um hvað tíminn líður hreint ofboðslega hratt. Nokkuð ljóst að ekki leiðist manni á meðan. Samt var 2006 ekki tíðindameira, heldur var unnið jafnt og þétt að nokkruð málum sem muna vonandi einkenna 2007. Sem fyrr er maður að vinna sér árið í haginn en ekki einhverja daga eða vikur.

Við höfðum alla heima yfir hátíðirnar og meira að segja var jólaboðið í Álfkonuhvarfinu. Sannaðist hið fornkveðna að "þröngt mega sáttir sitja". Það mættu allir tímanlega nema ég sjálfur, sem var að klára síðasta badmintontíma ársins. Það var því varla að ég væri hættur að svitna þegar flótti brast á gestina upp úr 22:00 og við rétt náðum að halda í Helga Jean og fá hann til að spila Buzz við okkur heimilisfólkið. Áramótin voru síðan hjá Katý og Guðmundi og fóru vel fram. Stefán hafði tilkynnt mér að hann nennti ekki að skjóta neinu upp í ár og þess vegna fór ég einsamall til ÍR-inganna og keypti tvær risatertur og fjölskyldupoka.
Gleðilegt nýtt ár !!!!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home