PIP lokaskýrslan

Eins og þið e.t.v. vitið, þá hef ég síðustu þrjú árin unnið í Norrænu verkefni á sviði þekkingarverðmæta. Verkefnið heitir PIP, Putting IC into Practice, og er ætlað til að hjálpa litlum og meðalstórum fyrirtækjum í upplýsingatækni til að hagnýta þau óáþreifanlegu verðmæti sem felast í fyrirtækjunum þannig að þau geti tryggt tilvist sína, verðmæti og afkomu. Ég byggi rannsóknina mína í doktorsnáminu nær eingöngu á þeirri vinnu sem unnin er í verkefninu. Þess vegna er mér efnið nokkuð kært.
Lokaskýrsla verkefnisins, sem ég er annar tveggja höfunda að, er komin út og þeim sem vilja kynna sér efni hennar er velkomið að hlaða hana niður af eftirfarandi slóð: http://www.nordicinnovation.net/prosjekt.cfm?Id=1-4415-197

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home