Skilaði uppkastinu í dag
Það var stór stund þegar ég sendi af stað umslögin þrjú til Pat Joynt, Per Olaf Brett og Steve Tanner sem innihéldu fyrsta uppkast að doktorsritgerðinni minni. Auðvitað er hellingur sem ég vildi hafa gert betur en það kemur síðar og í samhengi við endurgjöfina frá æfingavörninni í Osló þann 5. feb.
Annars er ég að fara til Bergen á miðvikudag til að funda á fimmtudag útaf norrænu verkefni. Ég kem svo heim á föstudeginum þannig að þetta verður stutt skot. Sigrún fer á morgun til London og kemur á sunnudag. Aftur erum við fjölskylda á ferð og flugi :-)


1 Comments:
Skilaði uppkastinu!....þessi setning gæti misskilist.
Gæti átt við þynnku.
Skrifa ummæli
<< Home