Spólað á sumardekkjum
Það var hálf skondið þegar ég kom til Glasgow í gær að þá snjóaði þungum blautum snjó. Húmorinn í því kom samt ekki í ljós fyrr en ég tók leigubíl og ætlaði upp í Bearsden þar sem EJS UK er til húsa. Bílstjórinn tók andköf þegar ég sagði hvert ég væri að fara og sagði að það væri allt að verða ófært. Ég skildi ekki hvað hann átti við því það var bara slabb á götunum og skv. íslenskum aðstæðum var ansi langt í að verða ófært. Þess vegna héldum við af stað en þegar við nálguðumst Maryhill þá voru bílar farnir að stoppa og snúa við. Þegar kom að síðustu brekkunni var almenn kaos og bílar farnir að renna hér og þar um göturnar og ennþá bara slabb. Þá kom í ljós að engin er með snjódekk og hvað þá nagla. Þeir vita ekki hvað það er. Þess vegna er rétt að taka með fyrirvara fréttum um ófærð í Bretlandi, en alveg rétt að halda sig frá götunum ef það kemur mugga því þeir fara alveg yfirum hérna og spóla hver um annan þveran.
Enn einn menningarmunurinn !!!


2 Comments:
hehhe... nú veistu allavega hvað þú getur fjárfest í, fyrirtæki sem selja vetrardekk :P
Fenguð þið þennan hættulega storm í gærkvöldi, þ.e. fimmtudaginn?
það var klikkaður stormur hér og létust manneskjur í Efra Austurríki
Kveðja frá Vín,
Anna
Flott hjá þér að sjá viðskiptatækifærið í þessu. Þú ert greinilega að læra í markaðsfræðinni sem þú ert í núna.
Annars held ég að Skotarnir verði erfiðir því þeir tíma engu :-)
Skrifa ummæli
<< Home