mánudagur, janúar 15, 2007

Líklega kominn með nýja vinnu :-)

Ég hef ekki þurft að kvarta undan verkefnaskorti frá því ég hætti að vinna hjá Tölvumiðlun síðasta vor. Ég hef satt að segja sjaldan haft meira að gera. Ég hef talað sem ég væri atvinnulaus en það breyttist á miðvikudaginn síðasta þegar ég byrjaði að kenna Þekkingarstjórnun á meistarastigi í Háskóla Íslands, en þetta kenni ég til vors.

í dag bauðst mér önnur vinna, öllu ólíkari því sem ég hef áður gert. Ég var beðinn að vera fararstjóri í hlaupaferð til Kína í maí. Sá sem var í þessu í fyrra er tvíbókaður og því góð ráð dýr. Ég þótti kvalifiseraður því ég fór í þessa ferð í fyrra, og er auðvitað ekki annars staðar í vinnu. Ég hefði kannski frekar átt að benda á Helga Jean, en þar sem þetta er bara í eitt skipti þótti mér það ekki nógu gott fyrir hann.

2 Comments:

At föstudagur, 19 janúar, 2007, Anonymous Nafnlaus said...

Ég þakka þér fyrir að halda uppi háum standard fyrir mig, enda ekkert annað viðunandi ;-)

 
At föstudagur, 19 janúar, 2007, Blogger EggertC said...

Já, ég hef hug á að þú komist í vinnu lengur en tvær vikur :-)

 

Skrifa ummæli

<< Home