mánudagur, janúar 15, 2007

Uppkast að endaspretti

Nú er ég búinn að sitja frá áramótum yfir doktorsritgerðinni minni og hamast sem óður maður að koma þessu saman. Ég ætla mér að senda afraksturinn af stað á miðvikudaginn því þá næ ég að standa við að móttakendur fái þetta hálfum mánuði fyrir æfingavörnina, sem vonandi verður í Osló þann 5. febrúar. Þess vegna er ekki mikið bloggað því ég er mættur hér um hádegið og sit til að verða tíu á kvöldin og lítið annað gerist. Það breytist líklega fljótt því ég fer til Glasgow á fimmtudag, fer til Bergen í næstu viku og svo auðvitað æfingavörnina. Nóg að gera.

Það kom mér á óvart hvað ég þurfti að endurskrifa mikið af því sem ég skilaði inn í mars sl. og ég er búinn að vera endalaust að velta fyrir mér efnistökunum. Núna, þessa stundina, er ég að berja saman gagnaúrvinnsluna og niðurstöðukaflann, enda ekki seinna að vænna ef ég ætla að vera búinn að þessu annað kvöld, því miðvikudagurinn fer ekki í annað en að prenta þetta út, binda inn og senda af stað. Reyndar finnst mér ég aðeins farinn að flýta mér, en það gerir ekki mikið til á þessum tímapunkti, því það er nauðsynlegra að geta skilað þessu af sér til þess að fá umsögnina, því ég á örugglega eftir að fá á mig viðbótarvinnu í þessu. Ég tók upp á því að vilja hafa gagnaúrvinnsluna öðruvísi en ég gerði fyrir jól svo ég er að endurvinna alla tölfræðina. Þetta hljómar verr en það er í raun og veru, því ég er búinn með alla vinnuna. Það þarf bara að taka út nýjar töflur í SPSS inu og skeyta inn í textann. Þess vegna verður spennandi sjá hvar ég verð staddur í dagslok í dag.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home