Óðurinn til Íbúfen
Eins þungur og þreyttur ég er þessa dagana, þá eru fleiri í þeim sporum. Einn badmintonfélagi minn kvartaði sáran undan aldri og þreytu sem ekki skánaði þegar þann fór í bakinu svo að ég vann hann loksins. Sagðist hann þá ætla að fá sé íbúfen og sjá hvort ekki lagaðist. Ég sagði honum íbúfenið hafa verið lengi á vinsældalistanum hjá mér, svo mikið að ég orti sérstakan óð til íbúfensins fyrir löngu síðan og fer hér á eftir fyrsta erindið:
Ef sækir að þér þreyta og slen,
þorrinn allur kraftur,
skellt'í þig tveimur íbúfen,
og stökktu á fætur aftur.
Félll þessi vísa í góðan jarðveg svo ég ákvað að setja hana á bloggið.
Ég hef ekki ort neitt um Voltaren, en það hlýtur að koma :-)


2 Comments:
Magnað ljóð....
pabbinn góður penni barasta
Þú ættir að gefa út lyfjaljóðabók
Skrifa ummæli
<< Home