laugardagur, febrúar 03, 2007

Misheppnaður dráttur

Það fór heldur illa fyrir mér á fimmtudaginn. Ég var reyndar himinsæll að koma úr badminton um kvöldmatarleytið eftir að hafa unnig Agga 3-1, en venjulega skíttapa ég fyrir honum. Þar sem ég er að klæða mig í skóna hringir Stefán og segist vera með mömmu sinni því bíllinn hafi bilað og það þurfi að koma honum burt. Það varð úr að ég fór og keypti dráttartóg og fór og skipti á bílum við Sigrúnu og við Stefán fórum að huga að Passatinum.

Það var erfitt að finna stað fyrir krókinn á Passatinum en ég taldi mig þræða bandið í gegn og koma króknum á járnstuðarann fyrir aftan plastið. Þetta virtist í lagi og við lögðum af stað. Við Stefán vorum í símasambandi og vorum rétt lagðir af stað þegar kom slynkur á bandið og síðan heyrðist í Stefáni stuttu seinna: "Pabbi, stuðarinn fór af!!!" Þetta var bara eins og í lélegri bíómynd þar sem ég dró stuðarann einan og Stefán sat eftir í bílnum. Þetta var ömurlegt en ég gat ekki annað en hlegið að vitleysunni. Við feðgarnir hirtum leifarnar af stuðaranum, drógum bílinn að Salarlauginni og settum í stæði og ákváðum að Vaka væri betur til þess fallin að koma bílnum á verkstæði.

Ef að þið hafið Stefán á MSN þá segir hann "Pabbi eyðilagði bílinn minn", sem er nú ekki rétt stöðumat af tveimur ástæðum. Í fyrsta lagi er bíllinn ekki ónýtur, heldur bilaður, og svo það sem skiptir meira mál,i en það er að Stefán á ekki bílinn !!!

5 Comments:

At laugardagur, 03 febrúar, 2007, Anonymous Nafnlaus said...

Þrátt fyrir að sumar sögur séu kostnaðarsamar í framleiðslu, þá eru þær oftar en ekki, hverrar krónar virði í frásögn. Ég gat allavega ekki varist hlátri við tilhugsunina um manninn með stuðarann í eftirdragi.

 
At laugardagur, 03 febrúar, 2007, Blogger Dis said...

Þetta er ótrúlega fyndið

 
At laugardagur, 03 febrúar, 2007, Blogger EggertC said...

Já, skemmtanagildið verður að vera afrakstur þessarar æfingar, því allt annað er ekkert nema spæling.

 
At mánudagur, 05 febrúar, 2007, Anonymous Nafnlaus said...

En svona eftir á að hyggja, eru ekki til einhver meðul sem hægt er að nota til að sporna við misheppnuðum dráttum? Bara svona uppá seinni tíma að gera.

 
At miðvikudagur, 07 febrúar, 2007, Blogger EggertC said...

Já, að passa að það slakni ekki á króknum :-)

 

Skrifa ummæli

<< Home