sunnudagur, janúar 28, 2007

Verðlaun á árshátíð hlaupahópsins


Ég var að koma frá árshátíð hlaupahópsins í Laugum sem haldin var í Miðbæjarskólanum. Það var kátt á hjalla og það voru veitt verðlaun fyrir mestu framfarir, besta karl og kvenhlaupara, og síðast en ekki síst vonbrigði ársins. Ég varð þess heiðurs aðnjótandi að verða fyrir valinu sem vonbrigði ársins og fékk lítinn bikar því til staðfestu. Reyndar felst í þessu hvatning því sá sem fékk þessi sömu verðlaun í fyrra var valinn besti karlhlauparinn í ár. Ég gat samt ekki annað en brosað þegar ég las áletrunina á bikarnum, en þar stóð "Vonbrygði ársins" sem getur ekki talist annað en vonbrigði ársins hjá leturgrafaranum :-)

4 Comments:

At sunnudagur, 28 janúar, 2007, Blogger Anna C said...

bíddu, voru maraþonin ekki tekin? voru það bara æfingarnar hjá hlaupahópnum því síðasta ár varstu mjög duglegur í maraþonunum

 
At sunnudagur, 28 janúar, 2007, Blogger EggertC said...

Jú, en það var meira verið að stríða mér vegna þess að ég þurfti svo oft að byrja að labba á æfingum eftir að ég meiddist í ökklanum (sagðist vera kominn á göngudeild) og svo þurfti ég að hætta í Oslóarmaraþoninum. Það var enginn annar í hópnum með viðlíka sögu. Góða hliðin er sú að núna vita allir í hópnum hver ég er :-)

 
At þriðjudagur, 30 janúar, 2007, Blogger Dis said...

He he....hverskonar ofurmenni eru þetta eiginlega. Ég veit ekki betur að þú hafir hlaupið kínamúrinn ...en um að gera að gera grín af þeim sem afreka mest.

 
At þriðjudagur, 30 janúar, 2007, Blogger EggertC said...

Þú verður að athuga Ásdís mín að þarna voru ekkert nema ofurmenni sem hlaupa 100km hlaup og maraþon og hvað sem er.

 

Skrifa ummæli

<< Home