mánudagur, febrúar 26, 2007

Tíminn tosast

Það er allt á fleygiferð þótt ég sé ekki erlendis. Ég er að rembast eins og rjúpa við staurinn við að koma tölfræðikaflanum mínum áfram. Ég er bara ekki að fatta hvernig á að reikna þetta svo ég er að skrifa mig í kringum það þannig að ég eigi bara útreikninginn eftir. Síðan verð ég að finna mér einhver til hjálpar. Núna er komið að mánaðamótum og ég verð að klára þetta á næstu tveimur vikum svo ég geti líka klárað annað sem upp á vantaði fyrir páska, en þá ætla ég mér að vera búinn með þetta allt saman. Það svo svo sem fleira framundan sem og að baki. Ég var á hugarflugsfundi Vísinda og tækniráðs á föstudaginn, við Sigrún fórum með Þórdísi og Eyjólfi á Holtið á laugardagskvöld í Food & Fun, ég var á aðalfundi GoPro í dag, er ráðstefnustjóri á fimmtudag á ráðstefnu um útvistunarstefnu ríkisins og í næstu viku hefst sýningin Tækni & Vit þar sem ég er ráðstefnustjóri á ráðstefnu um Samskipti Sprotafyrirtækja og Fjárfesta. Þess vegna er hörð barátta við athyglisbrestinn framundan.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home