Að fótum fram
Það fór illa fyrir mér um helgina því þegar ég kom frá Glasgow til London var ég kominn með verk í gigtartána og eftir að hafa farið í nudd og laugina á hótelinu sem Sigrún var að skoða, þá fórum við á veitingastað á staðnum. Í lok máltíðar var ég hreint að drepast í fætinum og gat rétt hökt til baka og svaf með ísmola á tánni um nóttina. Á laugardeginum fórum við inn í Watford og skoðuðum í búðir. Ég keypti mér fjórðu seríu af Northern Exposure og fyrstu seríu af Extras og síðast en ekki síst keypti ég mér Íbúprofein til að minnka bólgurnar. Ég náði að fara aðeins í ræktina og hjóla um daginn og laugina. Um kvöldið fórum við í bíó í Watford á Music and lyrics, sem var ansi langdregin en meiddi engan. Á sunnudeginum fórum við út á völl og ég fékk uppfærslu og þægilega ferð heim. Það sem gerði samt útslagið fyrir mig að þegar ég var að pakka í töskuna mína beygði ég mig yfir töskuna og tognaði illa í baki. Þetta var toppurinn og ég er búinn að vera meira og minna í tjóni síðan og ákvað að sofa heima í dag til að reyna til þrautar að fá mig góðan. Þá var nú gott að geta horft og hlustað á Northern Exposure og þá miklu heimspeki sem þar er að finna !!!


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home