fimmtudagur, febrúar 08, 2007

Haltur í vörn (II)

Það háði mér aðeins að ég var farinn að finna óþyrmilega fyrir þvagsýrugigtarkasti, sem ég tel hafa komið til vegna skelfisks sem ég borðaði á föstudagskvöldið áður en ég fór. Þrátt fyrir að hafa með mér lyf, þá versnaði mér stöðugt og fór fljótt að segja til sín í góða skapinu. Ég var því bókstaflega haltur í vörninni. Það voru þrjár æfingavarnir á dagskrá. Fyrstur var Nils Magne Larsen og var ritgerðin hans bókstaflega fullkomin og var ég ekki seinn á mér að biðja hann að senda mér fjórða kaflann sinn svo ég gæti eitthvað lært af honum. Ég var næstur í röðinni og voru þeir félagar, Pat og Per Olaf, eins og góða og vonda löggan þar sem Pat var jákvæður og Per Olaf fann mér allt til foráttu því tölfræðikaflinn minn var svo lélegur. Fór þetta út í alls konar tuð sem ég var ekki sammála, sem reyndi enn frekar á góða skapið. Næstur á eftir mér var Geir Tomsen og var hann búinn með sína ritgerð, en það kom mér á óvart hvað hún var illa skrifuð og uppsett, og var vinurinn heldur betur tekinn í bakaríið. Síðastur var svo Eyþór sem kynnti tölfræðina sína og hlaut góðar undirtektir svo þetta var ekki bara neikvætt. Gott hjá mínum manni og má ég hafa mig allan við að halda í við hann.

Það er ljóst að ég á heilmikla vinnu eftir til þess að klára þetta því auk þess að endurskrifa 4 og 5 kafla þarf ég að bæta við nýrri heimildum í kafla 2 og þar sem ég veit hver annar prófdómarinn er þarf ég líka að finna eitthvað sem þessi ágæti maður hefur skrifað og reyna að pota því einhvers staðar í ritgerðina.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home