fimmtudagur, febrúar 08, 2007

Haltur í vörn

Ég fór á sunnudaginn síðasta til Osló til að fara í æfingavörn með uppkastið af doktorsritgerðinni. Ég vissi sem var að kaflar 4 og 5 voru ófullnægjandi en vænti þess að fyrstu þrír væru í lagi. Ég átti þægilegt flug, og fékk meira að segja uppfærslu, og fór beint í flugvallarlestina og síðan beint í lestina til Nittedal, svo ég þurfti aldrei að bíða. Það var gaman að hitta Pat en ekki síður að hitta Unni, konu hans, sem hafði fengið heilablóðfall rétt eftir málstofuna í Wisconsin. Þar sem það hafa heldur betur verið heilablóðföll í kringum mig í fjölskyldunni, þá var ég kvíðinn að sjá hvernig hún hefði það. Hún kom mér heldur betur á óvart því þótt hún væri máttfarin, gat ég engan veginn merkt að hún hefði skaðast á nokkurn hátt. Gaman að vita til þess að einhver skuli geta náð sér svona vel eftir jafn alvarlegt áfall.

Ég er að reyna að bæta við þetta en það vistast ekki

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home