Ég vann !!!
Þar sem ég vinn aldrei í happdrættum eða viðlíka spilum, þá var það frábær upplifun á samkomu sem ég sótti í Edinborg í kvöld að vinna. Málið var að þegar komið var á staðinn var þátttakendum boðið að setja nafnspjaldið sitt í skál og í lok fundarins voru dregnir út fjórir vinningar og hvað haldið þið? Ég fékk fyrsta vinninginn, sem var kampavínsflaska. Þar sem ég er að flækjast milli staða, þ.e. að fara til London á morgun, héðan frá Glasgow, þá sendi ég Stephen félaga minn hjá Metis heim með flöskuna til að færa Louise konu sinni.
Öðrum þræði var skondið að mæta þarna á networking samkomu á vegum Scotland IS, og þekkja þó nokkra frá ráðstefnubrölti mínu fyrir jólin. Ég er hægt og rólega að verða heimamaður hér í Skotlandi. Allavega eru lestarferðir og bæjarrölt í Edinborg að verða venjubundin.


1 Comments:
Til hamingju með þennan sigur. Stórkostlegt að þú vannst!!!
Knús frá Vín,
Anna C
Skrifa ummæli
<< Home