Athyglisbrestur
Ég er aldeilis á snúning þessa sólarhringana. Ég var að leiðbeina vegna meistararitgerðar í gærmorgun, fór á stjórnarfund í GoPro, síðan út á völl að taka á móti Andrew McNair, sem er framkvæmdastjóri tengslanetsins Connect Scotland, en hann var fyrirlesari á ráðstefnu sem ég stýrði í dag um samskipti frumkvöðla og fjárfesta. Ég fór með hann í Bláa Lónið beint af vellinum í grenjandi rigningu og roki, sem reyndar skipti ekki máli þegar maður var komin ofan í en óttalegt þangað til. Ég skilaði Andrew á hótelið og fór í badminton en gigtin er ennþá að angra mig svo ég staldraði stutt við. Síðan var það Perlan um kvöldið þar sem var fiskihlaðborð og nú reyndi á mataræðið svo um munaði. Ég hélt mig við hvíta fiskinn en lagðist aðeins á reykta laxinn og var það stærsti glæpurinn þetta kvöldið.
Í morgun var ég mættur snemma á hótelið að sækja Andrew aftur og núna var haldið í salinn í Kópavogi þar sem ég stýrði áðurnefndri ráðstefnu auk pallborðsumræðna. Tókst þetta í alla staði vel og rúmlega 70 ráðstefnugestir ánægðir. Ég fór með Andrew á Kringlukrána í hádeginu og gat ekki annað en glott þegar ég pantaði mér grænmetisbuff og sódavatn og horfði á Andrew borða kjúklingasamloku, franskar og skola niður með stórum bjór. Eftir að hafa staldrað við á sýningunni í Fífunni keyrði ég Andrew út á völl. Þegar kom til baka var haldið í Kópavoginn aftur í listasafnið þar sem vaxtasproti ársins var útnefndur og var þá dagskráin loksins tæmd.


3 Comments:
Skemmtilegur túr. Er stolt af þér að standast freistinguna á kringlukránni.
Ég er einmitt að fara á fyrirlestur í næstu viku um ofvirkni og athyglisbrest hjá fullorðnum.
Takk Anna mín, það er minna mál en ég hélt að breyta matnum svona algerlega.
Þú átt gott Ásdís mín að eiga mömmu með ofvirkni og pabba með athyglisbrest svo þú ert með mikla reynslu á þessu sviði.
Skrifa ummæli
<< Home