Og áfram á föstudegi

Á föstudeginum átti ég fund með Iain Russell hjá Intellectual Asset Centre um samstarf við SUT hér heima. Við Iain ræddum heima og geima í þekkingarverðmætamálum og hann var mjög upptekinn af ráðstefnunni þeirra í sept 2007. Síðan talaði ég við Maríu Weir og vildi hún vita hvort ég gæti fundið einhverja íslenska styrktaðila fyrir áðurnefna ráðstefnu og átti ég erfitt með að nefna nokkra slíka. Á leiðinni út frá Maríu hitti ég Ann Martin, sem sér um lógistík hjá SIA, mjög indæl stúlka sem hefur séð um allar boðsferðirnar mínar til þeirra. Næst tók við fundur hjá Andrew Walker, sem er fyrirtækjalögfræðingur og gott að eiga að í viðskiptum þarna úti. Þetta var hress ungur maður á uppleið og þótt fundurinn okkar væri stuttur, fannst mér fara vel á með okkur.
Næst var það kapphlaup út á flugvöll til að ná vélinni til London, sem var á tíma og allt í góðu. Ég tók Heathrow Express lestina, sem var ekki express þennan dag vegna tafa, og síðan þrjár neðanjarðarlestis til að komast á Waldorf Hilton hótelið rétt hjá Covent Garden. Þar beið Sigrún með grímubúninga handa okkur því við vorum á leið á miðaldaveislu í boði Lundúnaskrifstofu Glitnis.

1 Comments:
snilldarbúningar hjá ykkur. Fór ykkur vel :)
knús frá veiku stelpunni í Vín,
Anna C
Skrifa ummæli
<< Home