miðvikudagur, mars 14, 2007

Þetta er ekki hægt !!!

Þegar ég var að fara að sofa í gækvöldi var ég eitthvað aumur í hægra hné og virtist versna svo ég dreif mig í háttinn. Ekki fór betur en svo að ég svaf illa fyrir eymslum í hnénu og vaknaði fyrir sex í morgun, alveg að drepast í hnénu. Ég staulaðist fram og náði mér í kælibakstur og kældi hnéð og reyndi að teygja á fætinum til að finna smell í hnénu. Þetta virðist hafa tekist sæmilega því þótt ég sé aumur, þá er ég a.m.k. rólfær. Þetta finnst mér ekki sanngjarnt þegar gigtin er loksins að fara úr vinstri fætinum þá skuli sá hægri gefa sig.

Skilaboðin eru skýr. Ég þarf að léttast !!!

1 Comments:

At miðvikudagur, 14 mars, 2007, Blogger Anna C said...

úff greyið. Sama her, gat ekki sofið fyrir bakverkum. hver eru þá mín skilaboð?

knús frá Vín,
Anna C

 

Skrifa ummæli

<< Home