Nýta tímann á fimmtudegi
Talandi um að nýta tímann vel. Ég vaknaði rétt fyrir fimm á fimmtudaginn og sótti Gústa því við vorum á leið til Glasgow á stjórnarfund hjá EJS UK. Á vellinum hitti ég nokkuð af GoPro fólki að leið á árshátíð í Cambridge, en gat ekki annað en glott þegar ég rakst á Sigrúnu á ganginum að koma frá Boston og ég á leið til Glasgow. Hún gerði ekki mikið meir en að keyra heim og undirbúa sig fyrir Lundúnaferð daginn eftir. Í Glasgow var fyrsti fundurinn hjá EJS með lögfræðingi sem var að undirbúa Gústa og Snorra fyrir vitnisburð í kærumáli fyrrverandi starfsmanns. Síðan var það stjórnarfundurinn þar sem nýjar línur voru lagðar og vonandi hefst með þessu upprisa fyrirtækisins. Við samþykktum ársreikninga 2005 :-) ákváðum að fá okkur nýjan endurskoðanda. Við vorum ekki sátt við túlkun hans á framtíð fyrirtækisins. Að loknum fundi var Gústi keyrður út á völl til þess að halda heim en ég á undan niður á Radisson þar sem ég hallaði mér í klukkutíma þar sem ég var bæði syfjaður og haltur. Síðan komu Stephen og Darran til mín á hótelið og við fórum síðan í vínsmökkun hjá ráðgjafafyrirtæki sem heitir Active Corporate og fór hún fram á stað í miðbænum sem heitir Lighthouse. Ég smakkaði hvítvínið en lét rauðvínið og smáréttina vera vegna nýju matarreglnanna. Stephen kjammsaði á djúpsteiktum rækjum, leit til mín og sagði "This kills you doesn't it !!!" og tvíræð merkingin um áhrif á heilsu og löngun augljós.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home