Í Mogganum í dag

Í Mogganum í dag er grein um Íslandsmeistaramótið í dansi og þar stendur eftirfarandi, ásamt mynd af okkur hjónum;
"Í flokki Senior var einungis eitt par skráð til leiks þau Eggert Claessen og Sigrún Kjartansdóttir. Ég sakna þess að sjá ekki fleiri pör á gólfinu eins og verið hefur undanfarin ár og hvet hér með Seniorana okkar til að dusta rykið af dansskónum og láta sjá sig á gólfinu sem allra fyrst."

9 Comments:
Flott mynd af ykkur.
Hver skrifaði greinina? mér finnst sá aðili hefði átt að minnast á hve lengi þið hefðuð æft/keppt í dansi og þið ættuð skilið að vinna.
ég var 9 ár í dansi en á engan bikar þess til staðfestinga :(
Takk Anna mín. Þetta var grein um Íslandsmótið svo það var varla hægt að tala um dansferilinn okkar. Þú getur séð þetta í vefútgáfunni af Mogganum sem þú hefur aðgang að.
Þú átt haug af verðlaunapeningum fyrir dans þótt enginn sé bikarinn.
Til hamingju með daginn!
Takk fyrir afmæliskveðjuna Helgi minn. Var að horfa á uppistandið þitt sem skemmtun á afmælisdaginn.
Alveg eruð þið stórglæsileg! Til hamingju enn og aftur.
Svala
Takk enn og aftur Svala mín. Nú er það bara spurning hvenær við dönsum Old Time í Blackpool eins og við horfðum á forðum daga :-)
Já heyrðu mig Eggert, var það ekki á langtímaplaninu????
Svala
Jú, við ætluðum aldeilis að sjokkera Bretana :-)
Þið eruð alveg glæsileg
Skrifa ummæli
<< Home