sunnudagur, apríl 01, 2007

Íslandsmeistarar !!!




Ég hef lengi sagt að til þess að við hjónin gætum orðið Íslandsmeistarar í dansi, þá þyrfti að breyta reglunum á þann veg að keppt væri í úthaldi í stað þess að dæma dansfimina. Í gær varð okkur að ósk minni því við vorum eina parið sem mætti til keppni í flokki Senior í latin og eftir að við höfðum dansað með flokki fullorðinna fengum við verðlaun sem Íslandsmeistarar !!! Þetta var alveg makalaust að komast í gegnum þetta þvi við höfðum ekki dansað síðan í maí í fyrra í Blackpool. Ég búinn að vera gigtveikur og bruddi íbúfen frá þriðjudegi til þess að geta stigið í tána. Við náðum að æfa stutt á fimmtudagskvöld og föstudag með því að horfa á gamlar upptökur á vídeóvélinni því mundum ekki eitt einasta spor. Við náðum að standa þetta á keppnisdaginn nema hvað Jive-ið okkar var skotið því við rugluðumst illa. Mesta furða hvað þetta var. Með þessu unnum við keppnisrétt á heimsmeistaramótinu í Ástralíu á næsta ári (sem reyndar er plat því mótið er á Spáni).
Svona er nú tilveran skrýtin !!!

Það er rétt að taka fram að þetta er ekki aprílgabb :-)

5 Comments:

At sunnudagur, 01 apríl, 2007, Blogger Anna C said...

TIL HAMINGJU!!!!!!!!!!!

 
At sunnudagur, 01 apríl, 2007, Blogger Dis said...

Til hamingju.

 
At mánudagur, 02 apríl, 2007, Blogger EggertC said...

Takk fyrir þetta stelpur mínar. Svo kom í ljós að keppnin á næsta ári er á Spáni en ekki Ástralíu !!! Begga og mamma tóku á World Latin og Senior World Latin. Þannig að það var smá aprílgabb :-)

 
At þriðjudagur, 03 apríl, 2007, Anonymous Nafnlaus said...

Innilega til hamingju gömlu vinir. Þið eruð alveg ótrúleg og þvílíkar eðal fyrirmyndir. Takk fyrir allt gamalt og gott (best ég hætti, þetta er farið að hljóma eins og jólakort!) Kveðjur frá Svölu (mömmu hans Helga úr dansinum í den)

 
At þriðjudagur, 03 apríl, 2007, Blogger EggertC said...

Takk Svala mín, bæði fyrir fallega kveðju og svo auðvitað allt gamalt og gott. Skilaðu kveðju til Helga frá okkur. Þetta voru ótrúlega skemmtilegir tímar sem við áttum saman í dansinum.

Gott hjá þér að finna síðuna mína !!!

 

Skrifa ummæli

<< Home